Fjarskiptamastur. Ljósm. Síminn

Landsbjörg hefur þungar áhyggjur af fjarskiptaöryggi

Fulltrúaráðsfundur Slysavarnafélags Íslands lýsir yfir áhyggjum af fjarskiptaöryggi í dreifðari byggðum landsins, nú þegar slökkt hefur verið á hluta 2G og 3G farsímasenda og fyrirhugað að slökkva á fleirum. Fundurinn samþykkti samhljóða ályktun þess efnis þar sem segir m.a. „Nú þegar er farið að bera á því að svæði sem áður voru í góðu sambandi, eru nú sambandslaus með öllu, eða með mun lakara samband en áður.“

Fram kemur að mikilvægt sé að á hverjum tíma, tryggi farsímakerfi landsins öryggi íbúa sem best verður á kosið og skorar fundurinn á stjórnvöld að hafa forgöngu um að svo sé. „Þessi þróun sýnir jafnframt fram á mikilvægt öryggishlutverk VHF endurvarpakerfi það sem Slysavarnafélagið Landsbjörg byggði upp og hefur viðhaldið á eigin kostnað. Þar sem ekki er Tetra samband, eða ef Tetra kerfið af einhverjum orsökum liggur niðri, er VHF kerfi félagsins eina kerfið þar sem töluð skilaboð komast um langan veg þegar hætta steðjar að. Það er ósk Slysavarnafélagsins Landsbjargar að hið opinbera leggist á árarnar með félaginu að reka og viðhalda þessu mikilvæga öryggiskerfi.“

Landsbjörg hefur þungar áhyggjur af fjarskiptaöryggi - Skessuhorn