
Teikning af fyrirhuguðu athafnasvæði.
Kynningarfundur um niðurstöður umhverfismats landeldis á Grundartanga
Aurora fiskeldi og verkfræðistofan Efla halda í næstu viku kynningarfund um niðurstöður umhverfismats sem unnið hefur verið vegna fyrirhugaðs landeldis á laxi á Grundartanga í Hvalfirði. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns á dögunum hefur Skipulagsstofnun birt umhverfismatsskýrsluna á skipulagsgátt og getur hver sem telur sig málið varða skilað inn umsögn eigi síðar en 2. janúar 2026. Fyrirhugað er að framleidd verði um 28 þúsund tonn af laxi á ári og áætlað er að uppbygging fari fram í þremur áföngum og fullri framleiðslu verði náð árið 2032. Kynningarfundurinn verður miðvikudaginn 17. desember kl. 17:30 á Hótal Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit.