
Jóla-Gústi mættur við slökkvistöðina á Akranesi
Á hverju ári endurnýja Veitur fjölda brunahana víðsvegar á starfssvæði sínu. Sumir hafa lent í tjóni á meðan aðrir eru að eldast og þarf að skipta út. Í góðu samstarfi við viðkomandi slökkvilið vinna Veitur að markvissri uppbyggingu og endurnýjun brunahana, ekki síst þar sem nauðsynlegt er að fjölga þeim. Mikilvægt er að brunahanar séu aðgengilegir fyrir slökkvilið og ekki of langt á milli þeirra til að hægt sé að tengja fljótt og örugglega ef kviknar í. Auk þess skiptir höfuðmáli að brunahanar séu tengdir nógu stórum vatnslögnum til að ná upp þrýstingi og krafti í brunaslöngur þegar unnið er að slökkvistarfi.
Veitur ákváðu að þessu sinni að koma skreyttum brunahana ársins; „Jóla-Gústi“ fyrir á Akranesi um leið og frændur hans komu til byggða. Var hann kynntur til leiks eftir hádegi í dag við björgunarmiðstöðina við Kalmansvelli 2 þar sem þeir Ágúst Heimisson og Fjölnir Fjalarsson starfsmenn Veitna höfðu komið honum fyrir. Jóla-Gústa á að minna á mikilvægi brunavarna á heimilum nú á aðventunni. Loks er ekki úr vegi að minna ökumenn á að aldrei má leggja bílum við brunahana.