Fyrstu bekkingar sungu lagið Fimm mínútur í jól. Ljósm. hj

Hugljúf og skemmtileg jólamorgunstund Brekkubæjarskóla

Einn af föstum liðum á aðventunni er jólamorgunstund Brekkubæjarskóla sem fram fór í gærmorgun í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þar fjölmenntu nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn skólans ásamt fjölda foreldra og annarra aðstandenda nemenda. Þar stigu nemendur á stokk og fylltu húsið með söng og tónlist. Þá var einnig nokkrum nemendum skólans afhentar viðurkenningar fyrir störf sín og jákvætt framlag til skólastarfsins. Skessuhorn var að sjálfsögðu mætt á staðinn eins og sjá má af meðfylgjandi myndum.

Hugljúf og skemmtileg jólamorgunstund Brekkubæjarskóla - Skessuhorn