Fengu Evu Björg í heimsókn

Leshópurinn Fífan er hópur innan FEBAN, Félags eldri borgara á Akranesi og í nágrenni. Hópurinn kemur saman einu sinni í viku á veturna, á fimmtudögum klukkan 13. Þá er lesin bók og spjallað um efni hennar. Undanfarnar vikur hefur bókin Marrið í stiganum verið lesin. Hún er eins og kunnugt er eftir Skagakonuna Evu Björg Ægisdóttur sem er að gera það gott víða um heim sem spennusagnahöfundur. Auk þess er nú verið að framleiða sjónvarpsþáttaröð á Akranesi sem byggir á sögunni. Það hljóp því á snærið hjá félögum í Fífunni í gær þegar Eva Björg gat mitt í jólabóka kynningum komið við og spjallað um bókina og önnur verk sín. Áður en sest var niður yfir kaffi og konfekti smellti blaðamaður Skessuhorns þessari mynd af gestinum og félögum í Fífunni.

Fengu Evu Björg í heimsókn - Skessuhorn