Einstaklingar í áhættuhópum hvattir til bólusetningar

Einstaklingar í áhættuhópum eru hvattir til að þiggja bólusetningu gegn inflúensu, einnig þótt þeir hafi þegar veikst af inflúensu í haust eða vetur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili eru hvött til að gera eigin ráðstafanir varðandi almennar sóttvarnir til að minnka smitdreifingu innan stofnunar á flensutímanum svo sem varðandi heimsóknir, notkun andlitsgríma og handhreinsun. Inflúensan er fyrr á ferðinni en síðastliðna vetur, faraldurinn stendur yfir og er enn á uppleið. Fyrstu vikuna í desember lágu 27 einstaklingar á Landspítala með inflúensu.

Inflúensa er öndunarfærasjúkdómur af völdum inflúensuveiru. Á hverjum vetri gengur inflúensufaraldur venjulega á tímabilinu október til mars. Inflúensan veldur mismiklum veikindum hjá einstaklingum en veikindin geta verið alvarleg. Þegar smit eru útbreidd er meiri hætta á að einstaklingar í áhættuhópum veikist með alvarlegri afleiðingum, álag eykst einnig á heilbrigðiskerfið og í samfélaginu verður aukning á fjarvistum frá vinnu og skóla.

Áhættuhópar

Miðað við upphaf faraldra undanfarin ár og ef tekið er mið af fjölda greininga sést að fjöldi sjúklinga sem leggjast inn á Landspítala með eða vegna inflúensu á fyrstu 11 vikum faraldurs er mun hærri í ár en undanfarin ár. Í viðtali við Valtý Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalækni kemur fram að fjöldi barna hafi komið á bráðamóttöku Landspítala undanfarnar vikur vegna inflúensu og dæmi um að börn undir eins árs hafi þurft að fara í öndunarvél. Þeir sem eru í áhættuhópi, og sóttvarnalæknir hvetur sérstaklega til að þiggja bólusetningu sem fyrst, eru:

"name": "core/list",
"attributes": [],
"saveContent": "

Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

Börn undir 5 ára aldri sem náð hafa 6 mánaða aldri við bólusetningu.

Öll börn og fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdóma og aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.

Barnshafandi konur.

Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Fólk í starfstengdri áhættu vegna hugsanlegs samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu.

"innerBlocks": []

Hægt er að bóka tíma í bólusetningu á „mínum síðum“ á heilsuveru eða með því að hafa samband við sína heilsugæslustöð.

Einstaklingar í áhættuhópum hvattir til bólusetningar - Skessuhorn