Fallegur kornakur í Ásgarði í Reykholtsdal. Ljósm. gj

Tíu styrkir vegna kornræktar til Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar

Líkt og kom fram í frétt Skessuhorns í gær voru á dögunum veittir styrkir að fjárhæð 76,7 milljónir króna til kornbænda. Styrkirnir voru veittir vegna framleiðslu á þurrkuðu korni sem uppfyllir tilteknar gæðakröfur. Gert er ráð fyrir að verja tveimur milljörðum króna á árunum 2024-2028 til átaks í kornrækt.