Vetrarríki.

Ríflega 300 milljónir í eingreiðslu til íbúa á Vesturlandi

Á árunum 2020-2024 var rúmlega 7.062 milljónum króna varið í eingreiðslu í desember til þeirra er hafa átt rétt til greiðslu örorkulífeyris hverju sinni samkvæmt lögum um almannatrygginga eða endurhæfingarlífeyris samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. Þetta kemur fram í minnisblaði sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur sent velferðarnefnd Alþingis. Nefndin óskaði eftir slíku minnisblaði þar sem fram kæmi samsetning þess hóps er fengið hefur slíka eingreiðslu.