Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj

Meirihlutinn telur enga ágalla á aukafundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Meirihluti sveitarstjórnar Borgarbyggðar telur að engir ágallar hafið verið á málsmeðferð í svokölluðu Einkunnamáli sem varafulltrúi í sveitarstjórn gerði athugasemdir við á dögunum í bréfi til Innviðaráðuneytisins. Þetta kemur fram í umsögn sem Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstóri Borgarbyggðar sendi til Innviðaráðuneytisins á dögunum.