Jólablað Skessuhorns kemur út í næstu viku

Athygli er vakin á því að í næstu viku, miðvikudaginn 17. desember, verður Jólablað Skessuhorns gefið út. Að venju er stefnt að áhugaverðum og fjölbreyttum efnistökum. Skilafrestur efnis og auglýsinga í blaðið er föstudaginn 12. desember nk. Pantanir auglýsinga þurfa að berast á: anita@skessuhorn.is en efni, myndir og greinar óskast sent á: skessuhorn@skessuhorn.is Jólablað verður jafnramt síðasta tölublað ársins.