Greiðslur úr Ferðasjóði íþróttafélaga halda ekki í við verðlag

Greiðslur úr Ferðasjóði íþróttafélaga halda ekki í við aukinn ferðaskostnað á árunum 2018-2024. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Mennta- og barnamálaráðuneytið lét vinna og hefur kynnt. Ferðasjóðurinn hefur frá árinu 2007 veitt styrki til íþrótta- og ungmennafélaga í landinu vegna keppnisferða innanlands. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hafa rétt til að sækja um styrk í sjóðinn fyrir alla aldurshópa á skilgreind styrkhæf mót. Styrkir reiknast út frá fjölda keppenda og vegalengd ferða auk þess sem notast er við upphæðastuðul og landsbyggðarstuðul.