
Kosningu um sameiningu sveitarfélaganna lauk laugardaginn 20. september og fór talning fram í Borgarnesi þá um kvöldið. Vinna við að ljúka sameiningunni hefur þó ekki hafist vegna kærumála sem innviðaráðuneytið hefur ekki úrskurðað í. Ljósm. mm
Pattstaða í sameiningu vegna kærumála
Á fundi Byggðarráðs Borgarbyggðar í gær voru kynntar kostnaðartölur vegna undirbúningsvinnu við nýsamþykkta sameiningu sveitarfélagsins við Skorradalshrepp. Kostnaðurinn er nú kominn í um 35 milljónir króna. Áætlað er að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga standi straum af þeim kostnaði. Þá kom einnig fram að kostnaður sveitarfélagsins vegna kærumála í kjölfar sameiningarkosninga sé nú kominn í 5,3 milljónir króna. Væntir sveitarfélagið þess að sú fjárhæð fáist endurgreidd úr Jöfnunarsjóði.