Hér er horft yfir Grjótháls sem er milli Þverárhlíðar og Norðurárdals í Borgarfirði. Í nýsamþykktu aðalskipulagi Borgarbyggðar eru engin vindorkuver heimiluð á skipulagstímanum og engin svæði afmörkuð fyrir vindorkuver. Sveitarfélagið byggir afgreiðslu sína á því. Hundrað metra mælimastur var á árinu reist á hálsinum til að mæla þar vind. Ljósm. Mats Wibe Lund

Byggðarráð hafnar beiðni Sólar um undirskriftasöfnun

Byggðarráð Borgarbyggðar hafnaði á fundi sínum í gær beiðni náttúruverndarsamtakanna Sólar til framtíðar um að efnt yrði til undirskriftarsöfnunar til stuðnings almennri atkvæðagreiðslu um aðalskipulag fyrir Borgarbyggð 2025-2037. Umrætt aðalskipulag var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 9. október síðastliðinn. Skömmu síðar sendu samtökin erindi til sveitarstjórnar þar sem óskað var eftir áðurnefndri undirskriftarsöfnun og eftir atvikum síðar atkvæðagreiðslu meðal íbúa um aðalskipulagið.

Byggðarráð hafnar beiðni Sólar um undirskriftasöfnun - Skessuhorn