Fréttir
Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn

Spurningar vakna um gjaldtöku að nýju í Hvalfjarðargöngum

Á kynningarfundi Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um nýja samgönguáætlun voru einnig Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. Á fundinum var kynnt stofnun nýs innviðafélags í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að auka fjárfestingu í samgöngum. Tilgangur hins nýja félags er að koma á nýju skipulagi fjármögnunar við framkvæmd stórra samgöngumannvirkja og tryggja hraðari framvindu framkvæmda við gerð þeirra.