
Áætluð lega nýs vegar framhjá Borgarnesi.
Helstu vegaframkvæmdir á Vesturlandi seint á tímabili áætlunar
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti í morgun nýja samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 og stofnun innviðafélags um stærri samgönguframkvæmdir. Hlutverk innviðafélags verður að hraða fjárfestingum í þjóðhagslega mikilvægum samgöngumannvirkjum meðal annars jarðgöngum en stefnt er að því að undirbúningur við næstu jarðgöng hefjist á þessu ári og líkt og kom fram í frétt Skessuhorns fyrr í dag eru það Fljótagöng sem fyrst verða í röðinni. Félagið verður að fullu í eigu ríkisins og frumvarp um stofnun þess verður lagt fram á vorþingi. Í máli Eyjólfs kom fram að eitt af fyrstu verkefnum þessa nýja félags verði framkvæmdir við Sundabraut.