Jólaálfur seldur til stuðnings sálfræðiþjónustu

Sala á Jólaálfi SÁÁ stendur yfir dagana 3. til 7. desember og er tekjum af sölunni ætlað að styðja við sálfræðiþjónustu barna hjá samtökunum. Sálfræðiþjónusta SÁÁ er fyrir börn 8-18 ára sem alast upp við fíknsjúkdóm á heimilinu. Mikil eftirspurn er eftir þjónustunni, sem SÁÁ niðurgreiðir með sjálfsaflafé. Árlega sinnir SAÁ um 200 börnum auk þess að veita foreldrum og fjölskyldum fræðslu og stuðning.

Jólaálfur seldur til stuðnings sálfræðiþjónustu - Skessuhorn