Fréttir

Framkvæmdir við veg um Kjalarnes hefjast að nýju á næsta ári

Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis telur ekkert því til fyrirstöðu að framkvæmdir við næsta áfanga tvöföldunar þjóðvegarins um Kjalarnes hefjist á næsta ári. Þetta kemur fram í áliti nefndarinnar sem lagt var fram á Alþingi í gær. Á álitinu kemur fram að þrátt fyrir að ekki hafi enn verið lögð fram á Alþingi margboðuð samgönguáætlun innviðaráðherra fyrir árin 2026-2040 sé samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034 sem samþykkt var árið 2020 enn í gildi þó framkvæmdir við hana hafi ekki staðist áætlun vegna vanfjármögnunar.