Íþróttir
Þotuskjöldinn hlaut Högni Högnason fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Ljósmyndir: Snæfellingur

Uppskeruhátíð hestamannafélagsins Snæfellings

Uppskeruhátíð hestamannafélagsins Snæfellings var haldin á Klifi í Ólafsvík sl. föstudag. Hefð er fyrir því að veita knöpum í barna,- unglinga- og ungmennaflokki í félaginu hvatningarverðlaun fyrir þátttöku í mótum á afstöðnu tímabili. Knapar sem hlutu viðurkenningu í barnaflokki voru þær Tinna Unnsteinsdóttir og Bjartey Ebba Júlíusdóttir. Knapar sem hlutu viðurkenningu í unglingaflokki eru Ari Gunnarsson Osterhammer, Haukur Orri Heiðarsson Bergmann, Sól Jónsdóttir, Kristín Lára Eggertsdóttir, Elín Una Eggertsdóttir og Rebecca Luise Lehmann. Knapar sem hlutu viðurkenningu í ungmennaflokki eru Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir, Hera Guðrún Ragnarsdóttir og Valdís María Eggertsdóttir.