Fréttir

Jákvæð rekstrarafkoma Stykkishólms

Fjárhagsáætlun A og B hluta Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að rekstrarafkoma ársins verði jákvæð um tæpar 123 milljónir króna sem eru rúmlega 4,6% af tekjum. Fjárhagsáætlunin var til fyrri umræðu í bæjarstjórn 30. október. Gert er ráð fyrir að tekjur bæjarfélagsins verði rúmar 2.643 milljónir króna. Þar af vega þyngst útsvar og fasteignaskattar að fjárhæð tæpar 1.312 milljónir króna, framlög Jöfnunarsjóðs eru áætluð rúmlega 697 milljónir króna og aðrar tekjur tæpar 635 milljónir króna.