
Jóhannes með laxinn sem er 105 cm langur og 50 cm í ummál. Ljósmyndir: Jóhannes Sturlaugsson neðanvatns og Kalda
Risa hængur úr Haffjarðará leggur inn í sviljabanka
Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur greinir frá athyglisverðri tilraunaveiði á FB síðu sinni. Hann var nýverið við rannsóknarveiðar í Haffjarðará á Snæfellsnesi. Í búrið veiddi hann sannkallaðan risalax; 105 cm langan hæng og 50 cm í utanmál. „Ég áætla að þetta sé stærsti Atlantshafslax sem veiðst hefur í háf,“ skrifar Jóhannes og heldur áfram: „Hængur sá var kominn í höfðinglegan hrygningarbúning með tilheyrandi krók í yfirstærð – og aukin heldur skartaði hann veiðiugga á stærð við bakugga smálaxa. Vegna stærðar laxins og líkamlegs atgervis hefur hann fengið nafnið Haffjarðarárjötuninn.“