Fréttir

Jólaljósin tendruð í Stykkishólmi í kvöld

Í dag verða ljósin á jólatrénu í Hólmgarði í Stykkishólmi tendruð við hátíðlega athöfn. „Viðburðurinn hefst kl. 18:00 og verður með hefðbundnu sniði. Kvenfélagið selur heitt súkkulaði og smákökur, nemendur fyrsta bekkjar tendra ljósin og hver veit nema nokkrir rauðklæddir láti sjá sig. Nemendur í þriðja bekk grunnskólans fóru nú á dögunum í Sauraskóg og völdu jólatréð í ár í samvinnu við Björn Ásgeir, formann skógræktarfélagsins,“ segir í tilkynningu.