Fréttir

Skorradalshreppur hækkar útsvar

Hreppsnefnd Skorradalshrepps ákvað á fundi sínum í gær að hækka álagningarprósentu útsvars í sveitarfélaginu í þá hæstu leyfilegu eða 14,97%. Þetta eru talsverð tíðindi þar sem íbúar í Skorradalshreppi hafa um langan aldur greitt mun lægra útsvar af tekjum sínum en íbúar flestra annarra sveitarfélaga. Skýringuna á hækkuninni er að finna í því að fyrir skömmu samþykktu íbúar hreppsins sameiningu við Borgarbyggð og tekur sú sameining gildi eftir sveitarstjórnarkosningar í vor og hafa íbúar Borgarbyggðar þurft að greiða 14,97% af sínum tekjum í útsvar. Greiða því íbúar beggja sveitarfélaganna sama útsvar fram að sameiningu.