
Gera ráð fyrir góðri rekstrarafkoma hjá Grundarfjarðarbæ
Fjárhagsáætlun A og B hluta Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að rekstrarafkoma ársins verði jákvæð um 161 milljón króna sem er um 7,4% af tekjum. Fjárhagsáætlunin var til fyrri umræðu í bæjarstjórn á dögunum. Gert er ráð fyrir að tekjur bæjarfélagsins verði tæpir 2,2 milljarðar króna. Þar af vega þyngst útsvar og fasteignaskattar að fjárhæð 1.041 milljón króna, framlög Jöfnunarsjóðs að fjárhæð 520 milljónir króna og aðrar tekjur að fjárhæð tæpar 619 milljónir króna.