
Veitur boða til íbúafundar á Akranesi
Næstkomandi miðvikudag halda Veitur íbúafund á Akranesi. Fyrirtækið vill eiga samtal við bæjarbúa um þjónustu fyrirtækisins í sveitarfélaginu. Fundurinn verður í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll miðvikudaginn 19. nóvember kl. 19.30-21.30.
Fram kemur í tilkynningu að Haraldur Benediktsson bæjarstjóri mun opna fundinn og Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna fer yfir starfsemi fyrirtækisins í bænum. Sólrún mun meðal annars ræða fyrirhugaða leit að heitu vatni, hvers vegna lekar eru algengari á sumum svæðum en öðrum og hvernig Veitur munu vaxa með samfélaginu á Skaganum.
Fundurinn er öllum opinn og nægur tími gefst til að svara spurningum úr sal.