
Svanur RE og Venus NS lönduðu kolmunna á Akranesi sama daginn, 22. október. Aflinn fékkst í færeyskri lögsögu. Ljósm. Þorvaldur Guðmundsson
Mestum afla landað á Akranesi í október
Akraneshöfn var sú höfn á Vesturlandi þar sem mestum afla var landað í október eða tæpum 1.297 tonnum. Í Grundarfirði var á sama tíma landað rúmum 1,106 tonnum, í Rifi var landað 1.010 tonnum, í Ólafsvík var landað rúmum 485 tonnum, í Stykkishólmi var landað rúmum 63 tonnum og á Arnarstapa var landað 61 tonni.