
Grundarfirðingar horfa í austurátt, en viðræður um sameiningu bíða um sinn. Ljósm. úr safni/tfk
Engar frekari viðræður í bili um sameiningu á Snæfellsnesi
Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum Snæfellsbæjar og Grundarfjarðarbæjar eru sammála um að engar viðræður fari fram það sem eftir lifir yfirstandandi kjörtímabils um hugsanlega sameiningu og/eða nánara samstarf sveitarfélaganna. Möguleiki er hins vegar á því að nýjar sveitarstjórnir taki málið upp að afloknum sveitarstjórnarkosningum á næsta ári og þá yrði byrjað á því að kanna áhuga íbúa á því að fara í slíkar viðræður. Þetta var niðurstaða samtals nokkurra forystumanna sveitarfélaganna tveggja á fundi þeirra í Snæfellsbæ á dögunum.