Alþjóðlegur minningardagur umferðarslysa er á sunnudaginn

Sunudagurinn 16. nóvember er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þetta er í fimmtánda sinn sem minningardagurinn er haldinn hér á landi. Í ár verður kastljósinu sérstaklega beint að bílbeltanotkun, einkum meðal ungs fólks. Haldnar verða minningarathafnir víða um land.

Ráðgert er að viðbragðsaðilar á Akranesi muni hittast við slökkvistöðina kl. 14 og aka þaðan í gegnum bæinn með áberandi hætti. Þá munu viðbragðsaðilar í Borgarbyggð hittast við Baulu klukkan 18:00 og aka þaðan að Stafholtskirkju þar sem prestur verður með hugvekju.

Auk þessara staða verða minningarathafnir haldnar á Akureyri, Breiðdalsvík, Dalvík, Eskifirði, Grímsnes- og Grafningshreppi, Ísafirði, Kjalarnesi, Múlaþingi, Ólafsfirði, Reykjavík, Siglufirði og Vestmannaeyjum í samvinnu við einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðila. Í Reykjavík verður athöfn við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl. 14. Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja þar ávörp og þá mun Hilmar Sigurjónsson lögregluþjónn segja frá reynslu sinni af tveimur umferðarslysum. Hinsegin kórinn mun flytja einkennislag dagsins.

Beltin bjarga

Þema dagsins er eins og fyrr segir áherslan á bílbeltanotkun. Hún hefur dregist saman meðal ungs fólks, einkum ungra karlmanna. Rúmlega helmingur þeirra sem lést innanbæjar í bifreið á síðustu 20 árum var beltislaus. Þá eru vísbendingar um að 10-15% eigi það til að nota ekki belti að staðaldri. Sá sem notar ekki bílbelti er í 13 sinnum meiri hættu á að bíða bana í umferðaslysi en sá sem notar beltið.

Alþjóðlegur minningardagur umferðarslysa er á sunnudaginn - Skessuhorn