
Nemendur í annarri heimilisfræðistofunni.
Ný og endurbætt kennsluaðstaða fyrir list- og verkgreinar í Grundaskóla – myndasyrpa
Eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni var opið hús í Grundaskóla laugardaginn 1. nóvember síðastliðinn. Þá gátu gestir skoðað aðstöðu í endurbyggðri álmu skólans. Í þessari álmu eru kennslustofur á miðhæð, vinnustofa og starfsmannaaðstaða á efstu hæð en neðsta hæðin er ný og glæsileg kennsluaðstaða fyrir fjölbreyttar list- og verkgreinar. Blaðamanni lék forvitni á að fræðast betur um þetta verkefni og áherslur sem lagðar voru við endurbyggingu skólahússins. Rætt var við Sigurð Arnar Sigurðsson skólastjóra af þessu tilefni og birtum við sömuleiðis nokkrar myndir sem teknar voru í vikunni sem leið að nemendum að störfum.