Fréttir
Samsett ljósmynd sem sýnir kræklingaleiru, sandmaðksleira, Álftafjörður úr lofti og marhálmur. Ljósm. Náttúrustofa Vesturlands.

Álftafjörður leynir á sér

Rannsókn sem Náttúrustofa Vesturlands gerði fyrir Vegagerðina bendir til að náttúra Álftafjarðar á norðanverðu Snæfellsnesi sé merkilegri en áður var talið. Náttúrustofan flokkaði og kortlagði vistgerðir í fjörum og á grunnsævi Álftafjarðar til að auðvelda mat á umhverfisáhrifum mögulegrar þverunar fjarðarins. Helstu niðurstöðurnar voru þær að svæðið er að mestu samsett úr þremur jafnalgengum vistgerðum; marhálmsgræðum, kræklingaleirum og sandmaðksleirum, sem hver um sig var ríkjandi vistgerð á rúmlega 30% af ríflega 200 athugunarstöðvum.