
Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir lektor við lagadeild Háskólans á Akureyri. Ljósm. UNAK
Mannréttindasáttmálar gera ekki kröfu um jöfnun atkvæðavægis
Líkt og kom fram í frétt Skessuhorns fyrr í vikunni hefur Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sett á fót starfshóp sem falið er að undirbúa breytingar á kosningalögum til að auka jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu. Nefndi ráðherrann að með því sé stigið gott skref í átt að auknu jafnræði gagnvart mikilvægum borgaralegum réttindum sem kosningarétturinn er og nefndi að auki að það sé grundvallaratriði í lýðræðislegu samfélagi og þar að auki mannréttindamál.