
Kallað eftir tilnefningum FKA
"Vertu hreyfiafl, hafðu áhrif á val á FKA viðurkenningarhöfum! Opnað hefur verið fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) 2026. FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu. Hægt er að tilnefna konur í einum flokki eða öllum til og með 21. nóvember nk," segir í tilkynningu.
Dómnefnd skipuð sjö aðilum fer yfir allar tilnefningar og verða úrslit kynnt á stórglæsilegri Viðurkenningarhátíð FKA á Hótel Reykjavík Grand 28. janúar 2026. Dómnefnd mun meta tilnefningar og á endanum, velja konur sem hljóta FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu.
Lögð er áhersla á að fá nöfn ólíkra kvenna á lista, fjölbreyttan hóp kvenna af öllu landinu, með ólíkan bakgrunn og reynslu sem dómnefnd mun vinna með og á endanum velja þær konur sem verða heiðraðar.
FKA heldur áfram að skrifa konur inn í söguna
FKA viðurkenningin var fyrst veitt árið 1999 og síðustu ár hefur framlína í íslensku atvinnulífi og nánir samstarfsfélagar og fjölskyldur viðurkenningarhafar fagna saman á stórglæsilegri hátíð sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu.
Á Viðurkenningahátíðinni eru veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem hafa verið hvatning og fyrirmyndir:
{
"name": "core/list",
"attributes": [],
"saveContent": "<ul><li>FKA Viðurkenning er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem er eða hefur verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.</li><li>FKA Hvatningarviðurkenning er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.</li><li>FKA Þakkarviðurkenning er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.</li></ul>",
"innerBlocks": []
}Hvaða þrjár konur verða heiðraðar? Hafðu áhrif og sendu inn tilnefningu fyrir FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2025.