Fréttir
Björn Erlingsson, forstöðumaður UT, Auður Daníelsdóttir forstjóri Orkunnar og Brynja Guðjónsdóttir markaðsstjóri.

Þrjátíu ár af Orku

Orkan er 30 ára í dag. „Frá opnun hefur markmið Orkunnar ávallt verið á lægra verð og að bjóða viðskiptavinum bestu þjónustuupplifun. Björn Erlingsson hefur starfað hjá Orkunni frá stofnun og rifjar upp að við opnun á stöðvunum var hægt að greiða með greiðslukortum og peningaseðlum sem þótti stórt skref á þeim tíma, að geta greitt með greiðslukortum úti á dælu allan sólahringinn. Um tíma var þróun búnaðar minniháttar en síðustu ár hafa ýmsar frábærar lausnir litið dagsins ljós en áhersla okkar er að vera leiðandi í uppbyggingu stöðva sem nýta tæknina til fulls. Í dag eru stöðvarnar 73 og árið 2021 var greiðslubúnaður uppfærður á öllum stöðvunum til að mæta þörfum nútímatækni. Það varð til þess að Orkan var fyrst til að bjóða upp á snertilausar greiðslur með Apple og Google pay leiðum. Tveimur árum síðar var þróuð leið til að bjóða Orkulykilinn í símann, fyrsta eldsneytisfyrirtækið á markaði til þess að bjóða þá lausn,“ segir í tilkynningu.

Í tilefni afmælisins býður fyrirtækið Orkulykilhöfum lægsta verðið sitt á öllum stöðvum í nóvember.