
Draugaskógurinn var glæsilegur og mikill metnaður lagður í að hræða þá sem þorðu inn í hann. Ljósm. tfk
Draugaskógurinn sló í gegn
Hrekkjavakan var um liðna helgi eins og varla hefur farið framhjá nokkrum manni. Engin undantekning var í Grundarfirði og fóru allskyns kynjaverur á stjá um klukkan 18:00 á föstudagskvöldinu. Þrátt fyrir leiðindaveður fyrr um daginn þá lagaðist það töluvert á meðan gengið var hús úr húsi og beðið um hnossgæti í staðinn fyrir að sleppa við einhverja hrekki. Einnig var draugaskógurinn á sínum stað en þar gátu krakkarnir gengið í gegnum hræðilegan skóginn í rökkrinu þar sem allskyns kynjaverur gerðu þeim bilt við. Allir skemmtu sér vel og komu svo klifjaðir heim um kvöldið.