
Breiðafjarðarferðan Baldur í Stykkishólmi. Skipið er varaskip fyrir Herjólf og var því á siglingum til Vestmannaeyja um tíma í haust þegar Herjólfur fór í slipp.
Þjóðferjuleiðir verði hluti af grunnkerfi samgangna
Þrír þingmenn Miðflokksins, þau Karl Gauti Hjaltason, Ingibjörg Davíðsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson, hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á vegalögum um svokallaðar þjóðferjuleiðir. Í frumvarpinu er lagt til að við Vegalög bætist ný svohljóðandi málsgrein: „Þjóðferjuleiðir eru hluti af grunnkerfi samgangna eins og það er skilgreint í samgönguáætlun hverju sinni. Til þjóðferjuleiða teljast leiðir þar sem ferja kemur í stað vegasambands um stofnveg og tengir byggðir landsins sem umluktar eru sjó við grunnkerfi á meginlandinu.“