
Veiðimenn varaðir við vegna fuglaflensu
Náttúruverndarstofnun hvetur veiðimenn til að sýna varkárni við veiðar og verkun villtra fugla nú þegar rjúpnaveiðar hefjast og gæsaveiðar eru í fullum gangi á sama tíma og fuglaflensa hefur greinst í þremur villtum refum, tveimur frá Reykjanesi og einum frá Þingeyri. Í tilkynningu frá stofnuninni eru veiðimenn varaðir við að veiða fugla eða nýta til matar sem haga sér óeðlilega eða eru sjáanlega veikir eða slappir. Þá er takið fram að fuglar sem virðast heilbrigðir geti einnig borið smit af fuglaflensu.
Einnig hvetur stofnunin veiðimenn og aðra sem stunda útivist að vera á varðbergi gagnvart veikindum eða dauða villtra dýra, þar á meðal refa, og tilkynna slíkt til Matvælastofnunar.