Fréttir
Ingibjörg Davíðsdóttir í ræðustól Alþingis.

Fyrirspurn á Alþingi um stöðu flóttafólks á Bifröst

Ingibjörg Davíðsdóttir þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um félgagsþjónustu sveitarfélaga. Þingmaðurinn óskar svara við því hvort ráðherra hafi í hyggju að beita sér fyrir breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga þannig að ríkissjóði verði heimilt að endurgreiða sveitarfélögum fjárhagsaðstoð við erlenda ríkisborgara sem átt hafa lögheimili á Íslandi lengur en tvö ár. Ef svo sé, vill þingmaðurinn vita hvenær frumvarp þar að lútandi verður lagt fram.