
Langsótt að breytingar á búvörulögum styrki stöðu bænda
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd Hvalfjarðarsveitar telur langsótt að breytingar þær sem boðaðar eru í frumvarpi til breytingar á búvörulögum muni styrkja stöðu bænda. Þetta kemur fram í umsögn um frumvarpið sem nefndin samþykkti og send verður atvinnuveganefnd Alþingis.