
Rokkveisla í Grundarfirði næsta laugardag
Það á eftir að hrikta í stoðum Samkomuhúss Grundarfjarðar næsta laugardag þegar hljómsveitirnar Bergmenn, Patronian og Duft stíga á stokk. Duft er nýðþung harðkjarna- og öfgarokksveit sem stofnuð var árið 2022 og hefur verið á miklu flugi síðan þeir gáfu út sína fyrstu plötu árið 2024.
„Frumraunin Altar of Instant Gratification er full af hálsbrjótandi slögurum og málar grimmur hljóðheimurinn dökka mynd af veröld sem mannkynið stefnir til glötunnar,“ segir í auglýsingu fyrir viðburðinn. „Dauðarokksveitin Patronian varð til árið 2021 þegar gítarleikarinn og söngvarinn Smári Tarfur fann mikla þörf fyrir að leita aftur í þungarokksræturnar eftir að hafa leikið lausum hala á hinum ýmsu sviðum tónlistarinnar. Fyrsta plata sveitarinnar, Stabbed with steel, kom út haustið 2022 og vakti töluverða athygli. Hún var meðal annars valin ein af tíu bestu plötum ársins hjá Scars & Guitars og var sveitin lofuð í hástert fyrir beittar lagasmíðar og öfluga spilamennsku.
Húsið opnar klukkan 19:00 og mun fyrsta hljómsveit stíga á svið klukkan 20:00. Miðaverð er 3.000 krónur. Rokkþyrstir mega ekki láta þessa veislu framhjá sér fara.

