Fréttir

Lokað fyrir umferð á hringveginum ofan við hesthúsahverfið í Borgarnesi

Í dag og fram til klukkan 18 í kvöld er þjóðvegur 1 lokaður fyrir allri umferð ofan við hesthúsahverfið í Borgarnesi. Umferð um þjóðveg 1 er því beint um Borgarfjarðarbraut, frá afleggjara á Seleyri og komið inn á hann aftur við Baulu í Stafholtstungum. „Til frekari útskýringar er á meðfylgjandi mynd sýndur kaflinn sem verður malbikaður í dag á hringvegi 1 fyrir ofan Borgarnes. Ekki hægt að komast lengra en upp í hesthús eða golfvöllinn Hamri í gegnum Borgarnes. Öll umferð sem er fyrir ofan það verður að fara í gegnum Borgarfjarðarbraut veg 50,“ segir í tilkynningu.