
Ólafsvíkurrétt. Ljósmyndir: Ólafsvíkurrétt á FB.
Lokafrágangur um helgina við Ólafsvíkurrétt
Um liðna helgi kom hópur fólks saman við Ólafsvíkurrétt og vann við lokafrágang gömlu réttarinnar. TS vélaleiga kom með fínt efni sem dreift var í dilka og almenning réttarinnar. Hópur fólks tók svo þátt í að dreifa úr mölinni og moka að veggjunum.