
Björgunarskipið Björg í Rifi er eitt af nýjum skipum í flota Landsbjargar. Ljósm. úr safni/af
Siglingaöryggi verði ávallt í fyrirrúmi
Landhelgisgæsla Íslands hefur sent Alþingi umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um áhafnir skipa. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns á dögunum er með frumvarpinu verið að bregðast við mönnunarvanda á þeim nýju björgunarskipum sem streyma nú til landsins.