Séra Hilda María ráðin sóknarprestur í Stykkishólmi

Séra Hilda María Sigurðardóttir hefur verið ráðin prestur við Stykkishólmsprestakall. Undir prestakallið tilheyra sex sóknir; þ.e. Stykkishólmssókn, Helgafellssókn, Breiðabólstaðarsókn, Bjarnarhafnarsókn, Flateyjarsókn og Narfeyrarsókn. Sr. Hilda tekur við starfinu af sr. Gunnari Eiríki Haukssyni sóknarpresti og prófasti.