
Sameiginleg kjörstjórn skipuð
Sveitarstjórnir Dalabyggðar og Húnaþings vestra ákváðu á fundum sínum í gær skipan sameiginlegrar kjörstjórnar sveitarfélaganna vegna kosninga sem fram fara dagana 28. nóvember til 13. desember um tillögu að sameiningu sveitarfélaganna. Samkomulag var um að Húnaþing vestra skipi tvo aðalmenn en Dalabyggð einn. Dalabyggð skipar hins vegar tvo varamenn en Húnaþing vestra einn. Aðalmaður Dalabyggðar í kjörstjórninni verður Valdís Einarsdóttir en Sigurður Þór Ágústsson og Gunnar Örn Jakobsson verða fulltrúar Húnaþings vestra. Varamenn verða Ragnheiður Sveinsdóttir frá Húnaþingi vestra og Sveinn Gestsson og Berþóra Jónsdóttir frá Dalabyggð.