Vefmyndavél á veginum vestan við Hvalfjarðargöngin á leiðinni til Akraness.

Eftirlitsmyndavélum komið upp í Hvalfjarðarsveit

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt samhljóða tillögu Lögreglustjórans á Vesturlandi um að sveitarfélagið festi kaup á og setji upp löggæslumyndavélar við Hvalfjarðargöng norðan megin og inn í Hvalfirði. Í erindi frá lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að á undanförnum árum hafi sveitarfélög víðs vegar um landið fjárfest í eftirlitsmyndavélakerfum sem taka myndir af ökutækjum sem koma inn og út úr sveitarfélögum. Kerfin lesa skráninganúmer bifreiða og þær upplýsingar fara í gagnagrunn sem einungis lögreglan hefur aðgang að. Einnig er geymd upptaka af ferðum bifreiða. Í erindinu kemur fram að slík kerfi hafi ítrekað sannað gildi sitt við rannsóknir sakamála og hafi mikið forvarnargildi fyrir sveitarfélögin.

Eftirlitsmyndavélum komið upp í Hvalfjarðarsveit - Skessuhorn