
Tölvugerð mynd af Sundabraut úr skýrslu Vegagerðarinnar.
Brú yfir Kleppsvík talin vænlegri kostur en jarðgöng
Í undirbúningi er að halda opna kynningarfundi vegna væntanlegrar umhverfismatsskýrslu vegna Sundabrautar. Samhliða því verða kynnt drög að aðalskipulagsbreytingum í Reykjavík. Fundirnir verða haldnir í Reykjavík, Mosfellsbæ og á Akranesi í október og nóvember. Að auki verður morgunfundur í streymi frá húsakynnum Vegagerðarinnar. Fundirnir verða auglýstir innan tíðar og eru áhugasamir hvattir til að mæta til þess að fá réttar upplýsingar um verkefnið og framgang þess. Vegagerðin gerir ráð fyrir að umhverfismatsskýrslan verði birt í samráðsgátt Skipulagsstofnunar í næstu viku og hvetur alla áhugasama til þess að senda inn umsagnir og athugasemdir. Í framhaldinu verður unnið úr öllum þeim athugasemdum sem koma inn.