Fréttir
Hjónin Hjalti Sverrisson og Sandra Sigþórsdóttir í nýju versluninni. Ljósm. mm

Opnuðu verslun á Arnarstapa í samstarfi við Icewear

Á Arnarstapa á Snæfellsnesi var nú um mitt sumar opnuð verslun fyrir ferðamenn. Einkum er þar í boði fatnaður og gjafavörur frá Icewear, en einnig drykkir og aðrar veitingar. Verslunin er í uppgerðum útihúsum, fjárhúsi og hlöðu, sem tilheyrðu áður býlinu Eyri, skammt fyrir ofan bryggjuna og útsýnispallinn. Sjálft íbúðarhúsið á Eyri er hins vegar í eigu Snæfellingafélagsins sem leigir það út. Að rekstrinum í útihúsunum standa hjónin Sandra Sigþórsdóttir og Hjalti Sverrisson. Þau eiga jafnframt Hótel Arnarstapa, skammt ofar í þorpinu á móts við minnismerkið um Bárð Snæfellsás.