
Mokað á tveimur stöðum samtímis. Ljósm. af
Gilið í Ólafsvík lagfært
Að undanförnu hafa staðið yfir framkvæmdir hjá Borgarverki í Gilinu í Ólafsvík. Verið er að gera endurbætur í læknum sem felast meðal annars í því að hlaða grjótvörn í botninum ásamt því að víkka út farveginn svo hann geti í flóðum flutt meira vatn. Auk þessara framkvæmda verður hreinsað efni fyrir ofan stífluna í Gilinu en þar hefur safnast mikið af jarðvegi í áranna rás. Framkvæmdaraðili er Snæfellsbær með stuðningi Ofanflóðasjóðs og er gert ráð fyrir að verkinu ljúki í byrjun nóvember.