
Í innanverðum Skorradal. Ljósm. mm
Skorradalur verði tilraunasvæði rannsókna, kennslu og þróunar í skógrækt
Landbúnaðarháskólinn Íslands á Hvanneyri, Háskólinn á Bifröst og Land og skógur hafa gengið frá samstarfssamningi til fimm ára um að efla rannsóknir, menntun og nýsköpun á sviði skógræktar og sjálfbærrar nýtingar skógarauðlinda á Íslandi, eins og segir í frétt frá stofnununum. Í samningnum kemur fram að áhersla verði lögð á að nýta Skorradal sem tilraunasvæði fyrir rannsóknir, þróun og kennslu.