Fréttir

Hringvegurinn í sundur á fimmtíu metra kafla

Það fór svo, eins og veðurfræðingur bentu réttilega á í gær, stórrigningar sem fylgdu fyrstu haustlægðinni gátu valdið skriðuföllum og að vatn flæddi yfir vegi. Gríðarleg úrkoma var um suðaustanvert landið frá því í gær og í morgun upplýsti Vegagerðin að hringvegurinn austan Hafnar í Hornafirði er nú lokaður eftir að vegurinn fór í sundur vegna vatnavaxta. Óljóst er hvenær hægt verður að ljúka viðgerð. „Hringvegurinn er í sundur vestan Jökulsár í Lóni. Fyrir nokkrum árum var bætt við varnargarði til að stýra vatni betur undir brúna og eldri garður var hækkaður. Það hefur ekki dugað til og er eldri garðurinn í sundur á um 100 metra kafla og því mikið álag á veginn sem hefur rofnað á þessum 50 metra kafla,“ segir í tilkynningu.

Vegagerðarmenn eru á staðnum og búið að leita til verktaka um að fara í verkið. „Óljóst er þó á þessari stundu hvað langan tíma tekur að gera við. Aðstæður eru erfiðar þar sem mikill vatnsagi er á svæðinu auk þess erfitt getur reynst að ná í efni til viðgerðar af sömu ástæðu, það er gríðarlega mikð vatn í öllum ám á Suðausturlandi. Bíllinn sem sést á myndinni er yfirgefinn en vitað er að ökumaðurinn fékk far af staðnum og lögreglu hefur verið gert viðvart, ekki er ljóst hvað ökumaðurinn hugðist fyrir eða hversvegna hann lagði í vatnið í stað þess að snúa við.“