Fréttir

Starfsárið hefst í kvöld hjá Kalman tónlistarfélagi

Halli Guðmunds og Club Cubano verða á fyrstu tónleikum haustsins hjá Kalman - tónlistarfélagi Akraness og flytja lög af nýútkominni plötu „Live at Mengi.“  Tónleikarnir verða í kvöld, fimmtudagskvöldið 25. september.

Haraldur Ægir Guðmundsson, eða Halli Guðmunds, er mörgum Skagamönnum kunnur en hann bjó á Akranesi um tíma og hóf sinn atvinnutónlistarferil þar. Halli hefur gefið út ellefu plötur og unnið með mismunandi stíl tónlistar; popp/rokk með Groundfloor, jazz, funk og undanfarið í latin tónlist Suður Ameriku. Árið 2023 kom út platan „Tango for One,“ þar sem Halli skoðaði bossanova tónlist og nú í ár kom út Club Cubano - Live at Mengi þar sem kúbanskur og kólumbískur rythmi er í forgrunni. Halli er bassaleikari og höfundur tónlistarinnar en með honum koma fram Jóel Pálsson á tenor/sopran sax, Hilmar Jensson á rafgítar, Matthías Hemstock á trommur, Kristofer Rodriguez á slagverk og Daniel Helgason á tres gítar og orgel, en hann er einnig listrænn stjórnandi verkefnisins.

Miðasala verður við innganginn og boðið upp á veitingar í hléi. Miðaverð er kr. 4.000 en 3.500 kr. fyrir Kalmansvini.

Starfsárið hefst í kvöld hjá Kalman tónlistarfélagi - Skessuhorn